Ferill 444. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 720  —  444. mál.




Svar


háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um alþjóðlegar skuldbindingar og frumvarpsgerð.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvaða verklagsreglur gilda við frumvarpsgerð í ráðuneytinu þegar ákvarðað er hvað eigi að koma fram í þeim kafla greinargerðar stjórnarfrumvarps er fjallar um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar?
     2.      Hvernig metur ráðuneytið það hvort tilefni sé til þess að skoða tiltekinn alþjóðasamning í þeirri vinnu og þá hvort tilefni sé til þess að minnast á niðurstöður þeirrar skoðunar í greinargerð frumvarps?
     3.      Hvernig er vinnulag ráðuneytisins varðandi hvort og þá hvernig það skoðar samræmi frumvarpa sinna við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem lagt er til að verði lögfestur á kjörtímabilinu, sbr. stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar?


    Þegar ákvarðað er hvað eigi að koma fram í þeim kafla greinargerðar með stjórnarfrumvarpi er fjallar um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar er unnið eftir samþykkt ríkisstjórnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og stjórnartillagna, sbr. 10. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar nr. 791/2018. Í 8. gr. samþykktar ríkisstjórnarinnar kemur fram að í greinargerð með frumvarpi skuli fjalla um samræmi þess við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar, enda gefi frumvarpið tilefni til slíks mats. Jafnframt má nefna 13. gr. samþykktarinnar þar sem er að finna ítarleg ákvæði um Evrópska efnahagssvæðið. Dómsmálaráðuneytið gefur út stöðluð eyðublöð til útfyllingar, um „áform til lagasetningar“ og „samantekt um stjórnarfrumvarp“, sbr. samþykkt ríkisstjórnarinnar, þar sem fylla þarf inn upplýsingar um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.
    Til hliðsjónar er jafnframt stuðst við Handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa sem forsætisráðuneyti, dóms- og kirkjumálaráðuneyti og skrifstofa Alþingis gáfu út árið 2007, til að mynda kafla 1.7 þar sem fjallað er um samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Lagafrumvörp innan ráðuneytisins eru almennt unnin á skrifstofu stefnumörkunar og alþjóðasamskipta og er þar lagt mat á, af lögfræðingum skrifstofunnar, hvað skuli koma fram í greinargerð um samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar með hliðsjón af efni frumvarpsins hverju sinni. Matið er jafnframt yfirfarið af skrifstofustjóra skrifstofunnar og þeim sérfræðingum innan ráðuneytisins sem málefnið heyrir undir. Þá fara lagafrumvörp einnig í gegnum gæðarýni í dómsmálaráðuneytinu áður en þau eru lögð fyrir ríkisstjórn. Loks ber að nefna að frumvörp fara í opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda þar sem hagsmunaaðilum gefst tækifæri til að skoða frekar samræmi frumvarps við alþjóðlegar skuldbindingar.
    Sama vinnulagi er beitt þegar ákvarðað er hvort efni frumvarps sé í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.